Slæmir sendiboðar
8.1.2009 | 23:29
Ráðherrar eru þessa dagana sendiboðar slæmra tíðinda. Tíðindin sömdu þeir sjálfir, en hráefnið í þau eru fengin úr smiðju þeirra glæpamanna sem lifðu hátt og svifust einskis. Já það er glæpur að stela frá börnum framtíðarinnar mögulegum lífsgæðum, verða þess valdandi að skerða þarf menntun og heilsugæslu. Áfram munu verða framdir glæpir í nafni niðurskurðar.
![]() |
Skora á ráðherra að endurskoða afstöðu sína |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Skil ekki þessar skyndiákvarðanir. Af hverju mátti ekki ræða þetta á hugmyndastigi? Og er Samfylkingin sammála þessum vinnubrögðum?
Eða lætur hún þetta yfir sig ganga eins og annað?
Sigurður Haukur Gíslason, 8.1.2009 kl. 23:47
Mönnum er gert að skera niður til að hreinsa ósómann eftir sjálftökumennina. Það er sárt og sárt þegar það bitnar á þeim sem ekki eiga sók á ósómanum. Hvernig á þjóðin að borga brúsann? Hvar á að skera? Gott væri að fá fram tillögur um það.
Margrét Júlía Rafnsdóttir (IP-tala skráð) 9.1.2009 kl. 09:27
Við stöndum í beinskurði hér á Akureyri. Þó reynt sé að verja velferðarkerfið þá er þetta ansi erfitt. En hér stendur ríkið/FSA í því að loka dvalarheimili og setja í tvíbýli. Ekki er vel staðið að þeirri aðgerð. Ákvarðandi heilbrigðisráðherra voru kynntar á Alþingi í tengslum við fjárlög. Þetta er skilyrt AGS aðgerð.
Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 9.1.2009 kl. 10:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.